Prem Rawat –
Leyfið mér þá að vera um stund
í návist hins raunverulega.
Leyfið mér að vera nærri hjarta mínu,
leyfið mér að fjarlægjast rugling og efa.
Leyfið mér að fjarlægjast óttann.
Og leyfið mér að lýsa yfir hatri mínu á öllu þessu.
Kannski hef ég aldrei gert það áður.
Í hvert sinn sem hatrið bankaði á dyrnar hjá mér,
var ég strax mættur:
„Já? Hvað ætlum við að hata í dag?
Um hvað höfum við ákveðið að vera ringluð í dag?“
„Hötum þetta, hötum hitt…“
. . . . . . . . . . .
Skrýtinn staður, þetta fyrirbæri sem við köllum „heiminn“, ha?
Skrýtinn.
Hversu langan tíma skyldi það í raun taka
fyrir eld hatursins að byrja að loga í þessum heimi?
Ekki langan tíma.
Hér búið þið.
Og hvílíkar andstæður!
Þessi flókna heildarmynd… og einn andardráttur innra með ykkur.
Allt þetta umrót… og hinn ótrúlegasti friður.
Hvílíkar andstæður! Friður!
Hvílík ótrúleg sorg og hvílík ótrúleg gleði!
Aðeins um fimm sentímetrar skilja þar á milli.
Hvílíkt ótrúlegt tækifæri, hvílíkur einstakur möguleiki:
að þurfa ekki að standa tómhent.
Ef þið viljið ekki fara héðan tómhent,
þá er betra að þið séuð ekki tómhent einmitt núna.
Þið verðið að byrja að halda fast í það.
Safnið!