Prem Rawat: Hið dásamlega hljóðfæri

Það er mér alltaf mikill heiður að tala við fólk sem vill læra eitthvað um lífið.

Mig langar að segja ykkur mjög einfalda sögu.

Draumkennd mynd af fiðluleikara

Einu sinni var til dásamlegt hljóðfæri.

Í hvert sinn sem einhver lék á það komu frá því hinir fegurstu tónar.

Með tímanum fór fólk að fá áhuga á „nýjum og öðruvísi“ hljóðfærum og bauð öðrum tónlistarmönnum að koma og leika.

Tónlistarmennirnir komu með trommurnar sínar, flautur og gítara.

Áður en langt um leið kunni enginn lengur að leika á þetta sérstaka hljóðfæri. Fólk fór að velta fyrir sér: „Hvaða gagn er eiginlega að þessu hljóðfæri lengur?“

Það var fallegt og vakti forvitni, en smám saman safnaðist á það ryk vegna þess að það hafði verið vanrækt, og það fór úr stillingu.

Draumkennd mynd af saxófónleikara

Dag einn kom maður og spurði: „Hvers vegna hafið þið lagt þetta fallega hljóðfæri til hliðar?“

Fólkið horfði undrandi á hann. „Hvaða hljóðfæri? Trommurnar eru allar stilltar, flauturnar eru dásamlegar, fiðlurnar eru fullkomnar og píanóið er líka stillt.“

Hann sagði: „Munið þið ekki eftir þessu hljóðfæri? Það var þetta hljóðfæri sem vakti áhuga ykkar á tónlist, varð til þess að þið byggðuð þennan stað og komuð hingað saman til að hlusta á það. En nú hefur forvitnin leitt ykkur að nýjum og öðruvísi hlutum, og þið hafið vanrækt það.“

Draumkennd mynd af hörpuleikara

„Hvað er svona sérstakt við þetta hljóðfæri?“ spurðu þau.

Maðurinn svaraði: „Leyfið mér að sýna ykkur.“

Hann hreinsaði hljóðfærið og það tók að skína.

Við gleymum. Við sjáum aðeins óhreinindin á yfirborðinu.

En sá sem þekkir þetta hljóðfæri í raun og veru getur séð handan ryksins. Hann getur þurrkað rykið af og dregið fram fegurð þess, ljóma, töfra og dýrð.

Síðan gerði hann það sem mestu máli skipti: hann stillti hljóðfærið. Til þess að hljóðfæri geti gefið frá sér fallega tóna verður það að vera stillt.

Þegar hann hafði stillt hljóðfærið rétti hann fólkinu það aftur og sagði: „Nú skuluð þið leika á það.“

„En við kunnum ekki að leika á það,“ svaraði fólkið.

„Strjúkið bara yfir strengina,“ sagði hann, „og þá tekur hljóðfærið að hljóma. Hlustið. Þið munið heyra það.“

Þegar fólkið byrjaði að leika á það heillaðist það af hinum fögru tónum.

Þetta var hljóðfæri sem gat sannarlega snert hjartað.

Draumkennd mynd af flautuleikara

Hvaða hljóðfæri er þetta?

Þú ert það.

Í leit þinni að öllu því sem er „nýtt og öðruvísi“ hefurðu gleymt sjálfum þér.

Allt snýst um aðdráttarafl hins „nýja og öðruvísi“ — allt nema þetta hljóðfæri, þetta líf.

Nema þetta hjarta.

Allt annað fær forgang.

Frá morgni til kvölds segirðu: „Ég þarf að gera þetta. Ég þarf að gera hitt.“ Ert þú einhvers staðar á þeim lista? Í tíunda sæti? Tuttugasta? Hundraðasta?

Nei. Hvergi.

Draumkennd mynd af píanóleikara

Þegar þetta hljóðfæri er stillt og þú byrjar að leika á það heyrirðu lag — lag andardráttarins sem kemur til þín.

Þetta er mjög einfalt.

Það sem þú leitar að, það sem þú þarft, er þegar innra með þér. En vegna þess að þetta hljóðfæri hefur verið vanrækt hefur það farið úr stillingu.

Þegar hljóðfærið er stillt geturðu notið þeirra möguleika sem í því felast.

Þetta er líf þitt. Finndu þessa innri ánægju.

Það er það minnsta sem þú skuldar sjálfum þér.

Ef þú vilt vera ríkur skaltu byrja á sjálfum þér.

Fyrsta skuldin sem þú verður að greiða er skuldin við hjarta þitt: ósk þess, þrá þess eftir lífsfyllingu.

Prem Rawat flytur erindi

Það er ekki mikið farið fram á.
Þetta er einfalt.
Finndu lífsfyllingu.

Draumkennd mynd af sellóleikara

— Prem Rawat