Mikilfengleiki hjartans
Þegar menn reisa minnisvarða um afrek sín láta þeir annað fólk finna til smæðar sinnar. Þegar fólk stendur frammi fyrir þessum byggingum finnst því það vera agnarsmátt.
Það þarf að líta upp til að sjá þær og finnst það sjálft vera mjög smátt í samanburði.
Þetta er kallað „mikilfengleiki“.
Við sköpun hjarta þíns er minnisvarðinn sniðinn að þér. Innra með þér býr mikilfengleikinn, og þar ert það þú sem vekur undrun og aðdáun. Það er manneskjan sjálf sem á skilið þessa undrun og aðdáun. Frá henni streymir kærleikurinn.
Friður mun ekki birtast á einhverjum vegg. Friður mun birtast innra með okkur. Þar þurfum við mest á honum að halda. Það er skortur á innri friði sem veldur stríðunum í heiminum fyrir utan. Þegar friður birtist innra með okkur förum við að skilja hvað friður merkir.
Frið þarf að finna.
Gleði þarf að finna.
Sannleikurinn finnst ekki í orðum.
Sannleikurinn er eitthvað sem við finnum fyrir.
Dýpsti sannleikurinn er innra með okkur, og dýpsti veruleikinn gerist beint fyrir augum okkar.
Við erum hér. Það er sannleikurinn. Við erum til. Við getum fundið fyrir. Við getum skilið. Við getum fundið til innri fyllingar.
Við þurfum að vera meðvituð um lífið sem við eigum. Það er ekki eitthvað sem við getum lifað sem aukaatriði. Við þurfum líka sjálf að sjá skýrt, ekki aðeins einhverjir sem hafa fengið þá ábyrgð að „sjá skýrt“.
Ég segi: stattu á eigin fótum.
Fólk segir að ég sé „umdeildur“. Ég veit hvað það merkir, en af forvitni fletti ég því upp í orðabókinni til að sjá hina formlegu skilgreiningu.
Í grunninn merkir það einhvern sem gengur í hina áttina.
Ég geng í aðra átt, en ekki bara til að ganga gegn straumnum. Ég get ekki farið óvarlega með þetta líf. Hver andardráttur er of dýrmætur. Hvert augnablik í þessu lífi er of dýrmætt. Ég get ekki leyft mér að taka áhættu. Ég þarf að ganga í þá átt sem ég þekki og halda áfram með skýrleika, án óljósleika.
Hvernig veit ég það? Ég hef áttavita og kalla hann hjartað.
Það er dásamlegur áttaviti. Hann er nákvæmur og svo raunverulegur. Hann vísar okkur í átt að lífinu. Fólk spyr hvort ég sé að tala um að heyra raddir innra með okkur. Nei, hjartað segir þér ekki hvers konar bíl þú eigir að kaupa.
Hjartað er þetta ákall, þessi köllun, sem segir: „Finndu til innri fyllingar. Svalaðu þessum þorsta. Lifðu þessu lífi meðvitað. Nýttu til fulls allt það sem þessi andardráttur hefur fært þér, eins og þú getur. Lifðu. Vertu til.“
Sum okkar eru orðin flink í að stinga höfðinu í sandinn. Við gröfum holu, stingum höfðinu ofan í hana og höldum að vandamálin muni hverfa. Það er ekki að lifa. Að lifa er að finna, innan frá og út, gleðina yfir því að vera á lífi.
Það sem ég tala um er að hvert og eitt okkar búi við innri frið. Það kemur fyrst. Ekkert getur komið í staðinn fyrir það. Við þurfum frið í lífi okkar. Þetta eru ekki innantóm orð. Þetta er raunverulegt. Þessi möguleiki er mjög, mjög raunverulegur.
Láttu hjarta þitt dæma. Hversu langt frá þér er þessi friður? Hann er innra með hverju og einu okkar. Svo nálægur er hann. Það sem við öll leitum að þegar allt kemur til alls er innra með okkur.