Núna, fyrir okkur,
fyrir hverja einustu manneskju,
er hver andardráttur, hvert augnablik
merki um
að tækifærið þitt er hér.
Þegar þú andar, skaltu ekki hugsa um það sem „loft“;
hugsaðu um það sem hina æðstu gjöf
sem manneskju getur hlotnast.
Skildu gleðina við að vera.
Og skildu ánægjuna —
ánægjuna og gleðina sem felst í því að vera sáttur.
Skildu, taktu á móti með auðmýkt,
ekki sem sjálfsögðum rétti, heldur með auðmýkt,
af hógværð,
hverjum andardrætti sem kemur inn í þig.
Vertu þakklátur;
leyfðu þessu hjarta að vera þakklátt.
Byrjaðu, í þessu lífi,
að skilja hvað það þýðir að vera á lífi.
Þetta er helgasta pílagrímsferðin sem þú munt fara í.
Þetta er pílagrímsferðin.
Og hvar er helgasti staðurinn?
Innra með þér.