Það er ótrúleg löngun sem kemur innra með hverjum manni.
Innra með okkur hverjum er friður eins og fræ í eyðimörkinni, sem bíður þess að blómstra.
Það sér engan mun. Það skiptir því engu máli hvort við erum rík eða fátæk, hvaða trúarbrögðum við tilheyrum, eða hvaða land við búum í.
Það sem því annt um er vatn.
Eins og fræið, bíður það þess að vatnið komi.
Í hjarta okkar bíður það og vill ekkert annað en að vera uppfyllt, að finna sig aftur heilt, ekki aðskilið af öllum málum sem trengja inn í líf okkar.
Friður hefst hjá hverri einustu mannveru.

Friður er eitthvað sem verður að upplifa í hverju hjarta.
Skortur á stríði er ekki friður.
Friður er ekki mál stofnana. Það eru menn sem hefja stríðin. Ef menn byrja að virða frið, þá verður friður.
Friðurinn sem við erum að leita að er innra með okkur. Þar munum við finna hann. Friður er í hjarta hverrar veru.
Ef við viljum frið í lífi okkar, er það örugglega mögulegt.
Við þurfum ekki að skapa frið; við þurfum að hleypa honum inn.
Svo margir eru að vinna að því að reyna að koma friði. Friðurinn er þegar til staðar og hann býr í hjarta allra mannvera – hann hefur alltaf gert og mun alltaf gera.
Hver og ein okkar er stórbrotin veruleiki í stórbrotnum heimi, og innra með okkur er ómetanlegur friður, ómetanleg gleði.

Þessi veruleiki er ekki í fornöld og ekki í nútímavísindum.
Hann er ekki uppi á himnum, heldur í himninum innra með okkur.
Allt gott og allt slæmt, allt sem mun gerast og allt sem mun ekki gerast, stríðin sem verða háð og friðurinn sem gerður verður – summa alls þess er minna mikilvægt en tilvist hverrar einustu mannveru.
Þetta er okkar tími; þetta er okkar tækifæri til að vera lifandi.
Öndin sem kemur inn í hvern og einn svo hljóðlátt, svo þögn, öskrar skilaboð mjög hátt og skýrt.
Hvað eru skilaboðin?